Beverly Hills 90210
Litlu Krúttin;)
08.02.2007 23:58:05 / evabeygla

Útúrdúr

Ókei þessi færsla er ekki alveg um Beverly en ég verð bara að deila þessu með ykkur.
Þannig er mál með vexti að ég er í MH eins og sum ykkar vita og það er alveg einstakur skóli með alveg EINSTAKAN skólastjóra.

Má líta á hann sem e.k. útsendara Þorgríms Þráinssonar þar sem hann er harður gagnrýnandi reykingafólks, það hyski skal vinsamlegast halda sig sem lengst frá skólalóðinni.

Hann sem sagt tekur röltið út í kuldann í (nánast) hverjum einustu frímínútum og smalar hjörðinni sem er of nálægt lengra frá og ef bara EF þú ert heppinn færðu að koma með honum upp á skrifstofu í "spjall"

Ég var "tekin" (ekki af audda blö samt) í annað skiptið og fékk sent þessa líka yndislegu skriflegu áminningu heim til mín í dag sem ég ætla að deila með ykkur. HA HA !

 Takið eftir málvillunum ;)

Áminning vegna brota á reglum um reykingabann

Í dag, föstudaginn 1. febrúar, boðaði ég þig til viðtals á skrifstofu minni vegna reykinga við inngang skólahússins um ellefuleytið. Í samtali okkar kom fram þér væru kunnug reglur skólans um bann við reykingum á lóð skólans. Jafnframt var rifjað upp að þetta er í annað sinn sem undirritaður hefur staðið þig að reykingum við skólahúsið á þessum vetri. Hitt skiptið var 27. okt. sl. og í lok samtals okkar þó lok gafstu loforð um að virða framvegis gildandi reglur.

Þar sem um ítrekað brot er að ræða sé ég mér ekki annað fært en að hafa áminninguna formlega að þessu sinni eins og ég boðaði í samtali okkar.

Áréttað skal að ítrekuð brot á skólareglum hvort sem þau varða almenna umgengni eða annað verða ekki liðin. Því vil ég með enn að ítreka við þig að fara að settum reglum og leyfi mér jafnframt að vona að þú dragir viðeigandi lærdóm af atvikum.

 Með góðri kveðju

 Lárus H. Bjarnason (darth wader)

 

Í öðrum fréttum :

Ég elska Beverly !!! :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 14:02:25 / slubbi

Kelly & Brandon

Eiga Kelly og Brandon eftir að byrja aftur saman?? mér finnst þau gullfallegt par :)

Bíðum spenntar eftir þættinum á eftir =D=D

ást og friður

AGNES OG EVA


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 10:02:41 / slubbi

90210

Vá hvað þátturinn í gær var skemmtilegur !

Hehe, Steve er alltaf jafn góður í að koma sér í vandræði í skólanum, í gær þá manaði einn KEG gaurinn hann til að hlaupa um skólalóðina í engu nema RAKSÁPU !! ... Því miður fóru úðararnir í gang og hann endaði nakinn. Það átti að reka hann úr skólanum en það reddaðist, eins og alltaf. :)

Svo var Donna að hjálpa einhverri körfuboltalessu að komast inn í Alfa-systrafélagið, hún gerði hana geðveikt sæta en svo vildi hún fara í annað systrafélag, hallærislegt.is !!

Mér finnst Donna orðin miklu sætari núna í þáttunum en hún var fyrst, ekki lengur með AFLITAÐASTA HÁR Í HEIMI heldur meira svona út í brúnt. Miklu flottara að mínu mati :)



Oh svo var svo sorglegt þegar Jimmy, vinur Kellyar sem var með alnæmi dó í þættinum. Við vorum að horfa á þetta og við fórum báðar að hágráta. Gvuð ég held ég fari bara að gráta af því einu að hugsa um þetta.

En ég þarf að fara í tíma, blogga meira seinna !


I love Beverly




» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 11:56:55 / evabeygla

BEVERLY HILLS AÐDÁENDAKLÚBBUR

Við höfum ákveðið að gera róttækar breytingar á þessari síðu og breyta henni í Beverly Hills aðdáendasíðu !!

Þar sem Beverly er uppáhalds þátturinn okkar verður þessi síða eingöngu helguð þessum yndislegu þáttum. Margt á döfinni, þar á meðal upplýsingar um uppáhalds persónurnar okkar úr seríunum og svo verður BARA bloggað um Beverly og ekkert annað.


Svo ef áhugi er fyrir hendi þá mega þeir sem vilja skrá sig í Aðdáendaklúbbinn okkar í skoðunum.

TAKK FYRIR

AGNES OG EVA


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 20:19:57 / evabeygla

Jólin og The player !!

Jólin búin nánast (loksins)

Held ég geti bara sagt með góðri samvisku að jólin hafi gert mig veika !
Ég átti eftir að versla ALLAR jólagjafirnar á Þorláksmessu ( og þá er ég að tala um heilar 8 gjafir ) og skellti mér ásamt hinum 100.000 aumingjans sálunum í Kringluna með Agnesi. Jesús minn, þetta er geðveiki !
Ég segi jólunum hér með upp. Nenni ekki svona stressi !

 
Ég var með svaka ofnæmi allan daginn, og það er sko ekkert sérstaklega girnilegt að vera hnerrandi þegar maður er að skoða föt og fleira skal ég segja ykkur.

Svo var ég bara orðin lasin um kvöldið. Við Agnes skelltum okkur samt í Þorláksmessupool, ég var sko geeeeðveikt góð en svo þurfti einhver polli að skemma leik nr. tvö fyrir mig. Jább, það voru smástrákar að reyna við okkur Agnesi !
Það þykir mér dæmi um að ég sé að verða svoldið gömul, strákar sem eru yngri en ég eru farnir að reyna við mig á pöbbum :$ .... Sprell ;)

 

En í allt annað.. Hefur einhver horft á þættina The Player ? Horfi stundum óvart á þetta og ég verð nú bara að segja að þetta er komið út í tóma vitleysu .
Eins og nafnið bendir til þá er þetta þáttur þar sem er verið að keppa um hver er mesti "playerinn". Það er einhver wannabe módel gella sem er sú sem allir gæjarnir eiga að vera að keppast um og "playa" hana sem mest. Eða það myndi maður halda.
Allt í einu núna er hún farin að láta eins og hún sé í The Bachelorette eða eitthvað. Þeir eiga bara að vilja hana og ekkert annað og hún er farin að henda gaurum út úr þættinum fyrir að vera "playerar". Fyndið.


Jiiis. Veit ekki alveg hvað ég er að bulla ;)... Mér leiðist bara frekar mikið akkúratt núna!

Ég er búin að vera vakandi frá því klukkan fimm í morgunn/nótt !
Svaf allan daginn í gærdag vegna veikinda.. og svo vaknaði ég klukkan níu, og vakti til svona ellefu. Ég bara búin að vera svaka dugleg að taka til og svona fínerí :)
Svo var ég að prófa einhvern leik sem Jósúa fékk í jólagjöf og ég hef uppgötvað að þessi 5 ára strákur er orðinn klárari en ég í tölvuleikjum, a.m.k. í þessari Playstation 2 tölvu !! .. Myndi sko rústa honum í gömlu Nintendo í Super Mario, ekki spurning, en hún er því miður látin. Blessuð sé minning hennar og verður þetta blogg ekki lengra í virðingarskyni.

Ást og Friður

Eva Dögg - Nöööööööörd !




» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 18:30:53 / slubbi

agnes

..BLOGG..


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 16:09:48 / evabeygla

Lærdómur

Ojj mér finnst svo leiðinlegt að læra að ég gæti dáið !

Reyndar er ég bara búin að opna náttúrufræðibókina og lesa innganginn í allan dag, en það er sama, það er ÁTAK að koma sér að verki.

SKIL EKKI af hverju ég er með svona lítinn sjálfsaga.. eins og ég er fullkomin á öðrum sviðum, mér er spurn. Ætti helst að senda mig í þjálfunarbúðir til Tælands þar sem ég læri að vakna kl. 6 (sem myndi nýtast vel, kann ekki heldur að vakna) og svo vera látin læra allan daginn.
Enginn lærdómur - enginn matur . Myndi sko þrælvirka á mig!

Ég væri líka ágætis kandítat í svona raflostsmeðferð held ég.. Gæti verið svona þraut þar sem ég mætti velja milli þess að lesa náttúrufræðibókina eða horfa á Beverly ;) ... Úff nei ég myndi deyja úr raflosti !!

Annars varð ég fullorðin í gær. Voða voða gaman :) Var heima á skaganum allan daginn og fékk að heyra afmælissönginn svona... 300 sinnum !

Svo bauð Olga mín mér í bíó á Santa Claus 3 (kvikmyndasmekkurinn hefur ekkert þroskast þótt ég sé ekki lengur barn ) og við skemmtum okkur bara konunglega á henni ! 

Eftir það bauð Agnieszka mér í Afmælispool og Afmæliskokteil. Fengum okkur Cuba Libre og urðum byltingarsinnar. Get ekki sagt að hann hafi runnið ljúft niður samt en ég var bara nokkuð hress eftir að hafa drukkið þennan dýrindisdrykk !

Þess má geta að ég rústaði Agnesi í pool . Já rústaði !

Svo núna á ég svo innilega að vera að læra, ekki eitt heldur TVÖ próf á morgunn og ég held að ég kunni ekki neitt. Úbbs.
Er ekki beverly að fara að byrja :P ?

Eva - sjálfráða byltingarsinni með vægan athyglisbrest !

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 14:49:14 / slubbi

ATH !! ATH !!

AAAAA AAAAA AAAAAA!!

Ný bloggsíða hjá svölustu gellum norðan Himalajafjalla (Olga og Eva)

http://blog.central.is/2-secrets

Tékk it át !


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 12:49:42 / slubbi

færsla!

Ég hata lífið! var búin að blogga og ýtti á vitlausan takka og allt fór:(

þ.a.l .. punktablogg.!

- Var söluhæst í gær

- Var líka ein að hringja eins og Auli;)

- Kíkti á shooters og hitti Katrínu huggufrænku! lítill heimur;)

- fór á dagheimili með Mumma og Dagi að horfa á Scrubs sgnilldarþættir;)

- Dagur á chiwowa hund sem heitir Rósa og er sæjdust!!;):)

- Bið spennt eftir að fá útborgað!

- Spalli er að fara að flýja fiskilyktina og koma að leika við mig í höfuðborginni!

- LATER PEEPZ;P

Lag stundarinnar -

The verve - The drugs don´t work

&

Harry Nilson - Can´t live (if living means without you)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 11:56:09 / slubbi

sf

er svona að fiktast að búa til nýtt blogg http://agnesrut.xblogg.is/ aaaaaaa crazy allir kíkja;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 15:49:58 / slubbi

trall!!

Halló börn :)

ég er ofurbloggari!!

í gær fór ég í sjálfstæðispartí:) og svo á players þar sem í svörtum fötum héldu upp stemmingu:) ég var ofurdansari!!ég og Dabbi vorum án efa flottust á gólfinu! bestu dansfélagar í geimi eins og VERA BER;);) haha..svo var bara tekinn limmósía nirrí bæ:) stæll.is!

ég kaupti nýtt sléttujárn á miðvikudaginn til mikillar gleði:) ég er samt með krullur núna;)eins og VERA BER;);

Kv-AGNES:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 09:50:55 / evabeygla

Tilkynning

Hér eftir mun Eva Dögg Davíðsdóttir skrifa undir nafninu evabeygla. Þetta er gert til þess að fyrirbyggja allan misskilning vegna fórnarkostnaðar.

Ég ætla að fara að lesa ljóðabók !!

Grótta

Áreiti frá kríunni

og konum að spóka sig en það er
allt öðruvísi, þær gera ekki árás

þótt komi reyndar mjög nálægt
er við mætumst

höggfæri satt að segja
en í mesta lagi gjóað til mín auga

ég bægi þeim frá með hendinni
kríunum, þær koma aftur

þær misskilja mig illilega
og hafa alltaf gert

í samanburði við kríur
virðast konurnar meinleysisgrey

en þeirra áreiti ristir samt ólíkt dýpra
og stafar ekki af misskilningi

 

Eva - Artí fartí :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 15:37:03 / slubbi

eitt laaaaag enn

Sælir góðir hálsar !

Ég er orðin þreytt á þessum andskotans (ritskoðað) lærdómi svo að ég ætla að blogga núna. Já blogg Já.

Ég var búin að gera þennan líka dýrindis fyrirlestur í morgunn, alveg algjörlega gallalaus og FULLKOMINN þótt ég segi sjálf frá. Svo hringdi síminn og það var bara áfangastjóri að boða mig á fund til þess að ræða við mig um mætinguna mína. Ég bara trallaði til hennar, lofaði að mæta 100% alltaf að eilífu AMEN og halelúja.

Neiii.. svo skoppaði ég af skrifstofunni hennar mér til mikillar ánægju en þá fattaði ég að ég átti að vera í tíma. Þannig að ég er strax komin með eitt skróp !! Missti af því að gera þennan ógeðslega frábæra fyrirlestur sem ég fæ pottþétt tíu fyrir. Ef ekki 12.

Ég svaf næstum því ekki yfir mig í morgunn.. en svo svaf ég yfir mig.

En ég verð að fara .. tíminn er peningar !!


Eva Dögg - samningsbundinn nemandi með svefnsýki


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 00:16:00 / slubbi

spánn?

Heyrðu kjellur hvernnig er stemningin fyrir útlandaferð til spánar næsta sumar .. erum að tala um 2ja vikna STELPU-ferð ;);) .. ??? þeir sem hafa áhuga commenta eða láta mig eða Jóhönnu frænkulíuz vita :):) ... Kv.AGNES

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 15:44:16 / slubbi

Neiiii...

Halló Halló og til hamingju með þessa nýju helgi á svona fallegum föstudegi :):)..það er sól og gott veður hérna í höfuðborginni svo hvað er hægt annað en að skella sér bara í ljós:) svo ætlum ég og Eva að tralla eitthvað skemmtilegt í kvöld og á morgun er það hvorki meira né minna en Borganes :):):) .. víí hlakka til sko!! en hmm hvað meira get ég sagt.. haha ég hitti útlending um daginn.. hann gaf mér bjór og ég sagði á útlensku Thank You hann spurði How do you say thank you in icelandic? ég svara : TAKK FYRIR .. útlendingurinn: aa takk fyrir how do I say : You´re beautiful?? ég: ÉG ER HOMMI .. útlendingur : aa takk fyrir ég er hommi ;) aaaaaaahhhahhahahahah.. ég er svo mikill húmoristi .:)en jæja ég hef bara ekkert að segja varð bara að skella einhverju smá inn:) en já ég ætla að taka fullt af myndum um helgina og setja þær svo inn bara á mánudaginn :) minni líka á hina síðuna mína www.blog.central.is/a-girls... njótið vel og góða helgi ;*;* Kv AGNES

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti